Þjónusta

UM OKKUR

UM FYRIRTÆKIÐ

Tindur Gæsla sinnir öryggisgæslu fyrir viðburði, fyrirtæki og aðila sem vilja hafa hlutina í öruggum og skipulögðum farvegi. Við leggjum áherslu á fagleg vinnubrögð, góða nærveru og skýrt skipulag frá upphafi til enda.

Hvort sem um er að ræða skemmtistaði, árshátíðir, tónleika, skólaböll, íþróttaviðburði eða einkasamkvæmi, þá mætum við með rétta fólkið í verkefnið. Starfsfólk okkar er vant að vinna í fjölbreyttu umhverfi þar sem yfirvegun, samskipti og ábyrgð skipta máli.

Markmiðið okkar er að skapa öruggt umhverfi þar sem gestir, starfsfólk og skipuleggjendur geta notið viðburðarins með trausti á að allt sé í góðum höndum.

Tindur Gæsla

Starfsstöðvar okkar

Við sinnum verkefnum á helstu þjónustusvæðum landsins með öflugri viðveru og traustri þjónustu.

Ísland
Reykjavík
Keflavík
Suðurland
Akureyri
Tindur Gæsla

Hjá okkur er öryggi byggt á skýru verklagi, góðri þjálfun og ábyrgri nálgun í hverju verkefni. Hvort sem um er að ræða viðburði, dyravörslu, öryggisvörslu í verslunum eða önnur verkefni þá leggjum við áherslu á að allt gangi smurt fyrir sig frá upphafi til enda.

Allt okkar starfsfólk gengst í gegnum vikulangt námskeið áður en það fer til starfa. Þar er farið yfir helstu þætti eins og ábyrgð og hlutverk dyravarða, fyrstu hjálp, brunavarnir, sjálfsvörn og samskipti í fjölbreyttu umhverfi.

Starfsfólk fær einnig fræðslu um viðbrögð við viðkvæmum aðstæðum, þar á meðal kynningu á neyðarmóttöku fyrir þolendur kynferðisofbeldis. Þannig tryggjum við að okkar fólk sé undirbúið fyrir raunverulegar aðstæður og geti brugðist rétt við þegar það skiptir mestu máli.

Við gerum ríkar kröfur til þeirra sem starfa hjá okkur. Allir starfsmenn þurfa að hafa hreint sakavottorð og sýna af sér fagmennsku, yfirvegun og ábyrgð í starfi.

ÖRYGGI - VIRÐING - FAGMENNSKA